Kennsluáætlun námskeiðs
Um námskeiðið
Grunnþjálfun í Canvas er netnámskeið fyrir kennara Háskóla Íslands sem eru að hefja notkun á Canvas eða vilja rifja upp grunnatriði í uppsetningu og umsjón námskeiðsvefs.
Námskeiðið skiptist í 14 hluta með myndböndum, leiðbeiningum og verklegum æfingum. Þátttakendur fara í gegnum efnið á eigin hraða, engir fastir tímar eða skilafrestir.
Farið er yfir uppbyggingu og stillingar námskeiðsvefs, miðlun námsefnis, verkefnaskil, námskeiðsdagatal, námsmat og endurgjöf, hópavinnu og flutning námsgagna milli námskeiða. Þátttakendur læra einnig að prófa aðgerðir sem prófunarnemandi og yfirfara námskeiðsvefinn í nemandasýn. Yfirlit yfir alla hlutana má sjá á heimasíðu námskeiðsins og í námsefni.
Þegar þú þekkir helstu verkfæri og veist hvar hlutirnir eru staðsettir verður auðveldara að vinna í kerfinu og byggja smám saman upp fjölbreyttari þekkingu.
Hve langan tíma tekur námskeiðið?
Gera má ráð fyrir 4–6 klukkustundum í námskeiðið, að meðtöldum æfingum. Námstími fer eftir fyrri reynslu þátttakenda og umfangi æfinga.
Vinnulag, verkefni og sjálfsmat
Mælt er með að fara í gegnum hlutana í þeirri röð sem þeir birtast. Sumar æfingar byggja á því sem áður hefur verið farið í.
Vinna þátttakenda skiptist í þrjá meginþætti í hverjum hluta:
Að kynna sér efnið
Myndbönd og texti veita grunnþekkingu á verkfærum Canvas og sýna hvernig þau eru notuð.
Að framkvæma verklegar æfingar
Æfingarnar hjálpa þér að yfirfæra þekkinguna og tengja eigin námskeiði.
Að meta eigin færni
Sjálfsmatið hjálpar þér að sjá hvað þú hefur tileinkað þér og hvað þú vilt æfa betur.
Mikilvægt er að prófa sjálf/ur þau skref sem farið er yfir og vinna verkefnin. Þannig festist þekkingin betur og þú öðlast meira öryggi í notkun Canvas. Ávallt er hægt að fara aftur í fyrri hluta og rifja upp eða endurtaka æfingar.
Áður en þú byrjar
Til að vinna verkefnin þarftu að vera með Canvas-æfingasvæði. Æfingasvæðið er hefðbundinn námskeiðsvefur án nemenda. Þar geturðu prófað aðgerðir og breytt stillingum án þess að hafa áhrif á raunverulegt námskeið.
Á æfingasvæðinu er einnig prófunarnemandi og með því að fara í hlutverk prófunarnemandans geturðu kannað hvernig námskeiðið og einstök atriði birtast og virka hjá nemendum. Til að komast í hlutverk prófunarnemanda er smellt á skoða sem nemandi í efra hægra horni námskeiðsins.
Gott er að hafa tiltæka mynd eða skjal til að hlaða upp, og hugmynd að námskeiði sem þú getur notað í æfingunum.
Hvar finn ég æfingasvæðið mitt?
Æfingasvæðið ætti að birtast á skjáborðinu þínu í Canvas.
Ef það sést ekki þar:
- Veldu námskeið í Canvas-valmyndinni, bláa borðanum lengst til vinstri.
- Veldu öll námskeið.
- Leitaðu að námskeiði sem er merkt sem æfingasvæði eða sandbox.
- Ef átt ekki með æfingasvæði skaltu óska eftir því með því að senda tölvupóst á kennslumidstod@hi.is.
Markmið og hæfniviðmið
Markmið Grunnþjálfunar í Canvas er að þátttakandi geti sett upp og skipulagt námskeiðsvef í Canvas og notað helstu verkfæri kerfisins sem lúta að kennslu og samskiptum við nemendur.
Þátttakandi skal að loknu námskeiði geta:
lýst uppbyggingu, viðmóti og helstu virkniþáttum Canvas
skipulagt námskeiðsvef í Canvas með námsefni, kennsluáætlun og skýrri leiðarstýringu
sett upp verkefni í Canvas með leiðbeiningum, skilastillingum, dagsetningum og vægi í námsmati
prófað sýnileika, aðgengi og virkni námskeiðsvefs í nemandasýn
notað námskeiðsdagatal, einkunnabók og SpeedGrader í Canvas til að halda utan um viðburði, skiladaga, einkunnir og endurgjöf
framkvæmt hópaskiptingu nemenda og flutning námsgagna milli námskeiða í Canvas.
Aðstoð og leiðbeiningar
Á canvas.hi.is finnurðu leiðbeiningar Háskóla Íslands um Canvas og tengd kennsluverkfæri.
Upplýsingar um þjónustu og aðstoð eru á síðunni Hvar fæ ég hjálp með Canvas?
Sjá einnig Algengar spurningar og gagnleg ráð.